 |
Undirbúningur fyrir golf keppni Heilsunudd býður upp á sérhæft golf íþróttanudd til að fríska og mýkja vöðva fyrir golf spilara sem eru að æfa eða undirbúa sig fyrir keppni með það að markmiði, að minnka líkur á meiðslum og flýta fyrir losun úrgangsefna úr líkamanum. Það eru margar gildar ástæður fyrir því að fara í sérhæft golf nudd áður en þú ferð að spila golf. Nudd frískar og mýkir vöðva og getur minnkað líkur á meiðslum. Nudd fyrir keppni er frábrugðið því sem er veitt á eftir keppni. Á eftir keppni er aðaláherslan lögð á að örva endrunæringu líkamans. Íþróttanudd fyrir keppni: Hratt nudd sem örvar blóðrás. Vöðvafestingar einnig nuddaðar. Íþróttanudd fyrirbyggir álagsmeiðsl. Íþróttanudd eftir keppni: Djúpt og rólegt nudd með ákveðnum strokum sem stuðla að slökun og fyrirbyggja mjólkursýrumyndun í vöðvum. Meðferð tekur u.þ.b. 1 klst. |
 |