svæðanudd  |  sogæðanudd  |  aromatheraphy 
íþróttanudd  |  dekurnudd  craniosacral 
kinesiology  |  heilun  ungbarnanudd
Ruth Jensdóttir-námsferilskrá   heimasíða

Vöðvanudd
Klassískt vöðvanudd er samheiti á ýmsum formum vöðvanudds, sem m.a. miða að því að mýkja vöðva og örva blóðrás; það er sú tegund nuddmeðferðar sem flestir þekkja. það er e.t.v. betur þekkt undir heitinu Sænskt vöðvanudd. Sænskt nudd er fyrsta kerfisbundna nuddaðferðin sem þróuð var á Vesturlöndum.
Unnið er markvisst með hvern líkamshluta, helstu vöðvar mannslíkamans skoðaðir og síðan tengt saman í eina heild. Í sænsku nuddi er hver einstök meðhöndlun álitin hafa sín sérstöku áhrif.
Eitt meginmarkmið þessarar aðferðar er að losa um súrefnissnautt blóð og eiturefni sem safnast hafa þar fyrir. Þannig eykur nuddið hringrás blóðsins og hreinsar innri líffæri án þess að auka álag á hjartað. Það losar um strengdar sinar og spennta vöðva líkamans.
Sænskt nudd örvar einnig efnaskipti líkamans á sama tíma og það hefur slakandi áhrif á taugakerfið.

Þessi vefsíða er hönnuð af Melcomedia