vöðvanudd   |  sogæðanudd  aromatheraphy
íþróttanudd  |  dekurnudd  craniosacral  
kinesiology  |  heilun  ungbarnanudd
Ruth Jensdóttir-námsferilskrá  heimasíða

Svæðameðferð
Svæðameðferð/viðbragðsfræði er list snertingar, skynjunar og næmni. Hún er virk aðferð til heilsubótar, til sjálfshjálpar og til að hjálpa öðrum til bættrar heilsu.
Svæðameðferð er meðferðarform, þar sem sérstakri nuddtækni er beitt á fætur til að hafa áhrif á tiltekna líkamsstarfssemi til heilsubótar.
Í svæðameðferð er líkamanum skipt kerfisbundið í ákveðin svæði. Með því að þrýstinudda þessi áhrifasvæði, næst fram örvun eða slökun á tilteknum stöðum í líkamanum.
Svæðameðferð byggir á þessari kenningu, að sérhvert líffæri og líkamssvæði eigi sér samsvörun í áhrifasvæði á fótum. Sama gildir um hendur allur líkaminn á sér áhrifasvæði á höndum.
Svæðameðferð er afar árangursrík við að ná fram slökun og vellíðan auka orkuflæði líkamans og styrkja hann þar með til sjálfshjálpar.
Svæðameðferð/viðbragðsfræði er markviss heilsumiðuð meðhöndlun. Hún getur verið lykill til að  því að koma jafnvægi á líkama og sál.

Þessi vefsíða er hönnuð af Melcomedia