|
Sogæðanudd Nuddstrokur sem miða að því að örva og styrkja sogæðakerfi líkamans. Aðalávinningur nuddsins er að það hraðar við hreinsun úrgangsefna úr líkamanum með því að örva virkni sogæða og blóðrásarkerfisins. Sogæðanudd hjálpar líka við að vinna gegn óæskilegri vökvasöfnun, ásamt því að gefa góða streitulosun og mikla slökun. Gagnsemi sogæðanudds:
-
minnkar uppsöfnun vökva í líkamanum
-
styrkir ónæmiskerfið
-
veitir slökun og bætir svefn
-
minnkar appelsínuhúð
-
losar uppsöfnun eiturefna í líkamanum
-
hreinsar mjólkursýru úr vöðvum
-
og ýmislegt fleira
Meðferð tekur u.þ.b. 1 klst 15 mín |