 |
Ungbarnanudd meðferð Slakandi og róandi nudd námskeið fyrir aðstandendur ungbarna: Heilsunudd býður nú kennslu í ungbarnanuddi. Í boði er 4ja til 8 vikna námskeið fyrir foreldra og aðstandendur barna á aldrinum 1-12 mánaða. Með hverju 8 vikna námskeiði fylgir CranioSacra ungbarna meðferð. Einnig er hægt að bóka staka tíma. Kennsla fer fram eina klst. á viku og eru foreldrar eða aðstandendur hvattir til að æfa sig heima daglega. Foreldrar eða aðstandendur læra að nudda barnið sitt með olíu stig af stigi frá toppi til táar. Kenndar eru ýmsar strokurnar sem virka nærandi og slakandi og hjálpar foreldrunum og aðstandendum að tengjast barninu sínu nánar og jafnframt hjálpa því að losa um spennu, loft, sofa dýpra og auka vellíðan þess andlega og líkamlega. Rannsóknir hafa sýnt að ungbarnanudd hraðar almennt tauga-og heilaþroska, líkamsvexti, hormóna- og frumustarfi ungbarna. Gagnsemi ungbarnanudds:
-
myndar aukin tengsl milli foreldris (þess sem nuddar) og barns
- bætir svefn
- getur róað órólegt barn
- árangursríkt við ungbarnakveisu
-
losar um loft í þörmunum og bætir meltinguna
-
hjálpar barninu til að slaka á
-
örvar blóðrásina
-
veitir barninu aukna tilfinningu fyrir líkama sínum
-
styrkir ónæmiskerfi líkamans |
 |